157. löggjafarþing — 70. fundur,  16. feb. 2026.

aðbúnaður og velferð svína.

78. mál
[16:42]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir skýrslu um aðbúnað og velferð svína sem unnin er samkvæmt beiðni sem lögð var fram á Alþingi síðastliðið haust af hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur ásamt átta öðrum þingmönnum Flokks fólksins og Samfylkingar. Tilefnið er að fara yfir regluverk, eftirlit og önnur atriði sem varða velferð svína, auk þess að svara tilteknum spurningum sem lúta m.a. að atriðum eins og halaklippingum, tannklippingum og aflífunaraðferðum svína.

Það er mikilvægt að þessi umræða fari fram. Velferð dýra er ekki jaðarmál heldur grundvallaratriði í íslenskum landbúnaði. Í lögum um velferð dýra, nr. 55/2013, er skýrt kveðið á um að dýr séu skyni gæddar skepnur sem eigi að geta „sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt“, svo vitnað sé í 1. gr. laganna. Það er sú siðferðilega undirstaða sem allt regluverk á þessu sviði byggir á.

Í samræmi við þessa skýrslubeiðni var ráðist í þá vinnu sem hér er kynnt. Aflað var upplýsinga frá Matvælastofnun um þau atriði sem sérstaklega var óskað eftir að svarað yrði en að öðru leyti var skýrslan unnin innan atvinnuvegaráðuneytisins og afhent Alþingi hinn 14. janúar á þessu ári. Markmið skýrslunnar er að varpa skýru og heildstæðu ljósi á gildandi regluverk, framkvæmd eftirlits og þá verkferla sem unnið er eftir í þeim tilgangi að stuðla að velferð dýra og tryggja að framkvæmd sé í samræmi við lög, reglur og vandaða starfshætti.

Reglugerð um velferð svína á Íslandi byggir annars vegar á ákvæðum laga um velferð dýra frá árinu 2013 og hins vegar á reglugerð um velferð svína frá árinu 2014 með síðari breytingum sem sett er með stoð í þeim. Þar er kveðið á um lágmarkskröfur varðandi aðbúnað, umönnun, heilbrigði og almenna meðferð svína. Markmið regluverksins er að svín búi við góða velferð, séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma.

Á undanförnum tíu árum hafa níu framleiðendur starfrækt 19 svínabú hér á landi. Við setningu reglugerðarinnar árið 2014 var gert ráð fyrir aðlögunartíma enda ljóst að þörf var á verulegum fjárfestingum til að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar. Sá tími var til 1. janúar 2025 en síðan lengdur til 1. janúar 2028 með reglugerðarbreytingu árið 2024. Helstu ástæður þeirrar framlengingar voru kostnaður, fjármögnunarerfiðleikar og skipulags- og leyfismál. Gerð er nánari grein fyrir gildandi undanþágum hér á eftir.

Stjórnvöld hafa stutt þessa grein með beinum stuðningi á þessum aðlögunartíma. Á árunum 2017–2021 fengu sex svínabú samtals 281 millj. kr. í fjárfestingarstuðning og fjögur bú fengu 187 millj. kr. í úreldingarbætur. Í reglugerðinni eru þó sem fyrr segir enn heimildir til að veita fresti fram til 1. janúar 2028 til að uppfylla ákveðnar kröfur reglugerðarinnar, m.a. um lausagöngu og um rými í stíum. Skilyrðin koma fram í bráðabirgðaákvæði reglugerðarinnar og eru háð mati Matvælastofnunar. Þar kemur m.a. fram að leyfi til frestunar er háð því að framleiðandi leggi fram gögn sem sýni fram á að hann hafi sannarlega gripið til ráðstafana til að uppfylla kröfurnar en það ekki tekist af ástæðum sem eru ekki á ábyrgð framleiðenda sjálfs. Við mat á slíkum beiðnum ber Matvælastofnun m.a. að líta til þess hvort framleiðandi hafi eftir atvikum hannað byggingarkosti, sótt um tilskilin leyfi og gripið til þeirra ráðstafana sem af sanngirni hefði mátt ætlast til af honum. Frestur til að sækja um þessa frestun er liðinn og umsóknirnar eru nú til afgreiðslu hjá Matvælastofnun. Þessar undanþágur eru ætlaðar til að mæta sérstökum aðstæðum án þess þó að ganga á grundvallarmarkmið um velferð svína.

Önnur helstu efnisatriði skýrslunnar, í ljósi þeirrar spurningar sem þar voru lagðar fram, eru m.a. þessi:

Hvað varðar aflífun svína eru starfandi fjögur svínasláturhús á Íslandi samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar. Þrjú sláturhúsanna nota rafdeyfingu áður en blóðgað er en eitt notar koltvísýring á háum styrk til að framkalla meðvitundarleysi fyrir blóðgun. Báðar aðferðirnar eru heimilar samkvæmt innlendri reglugerð Evrópusambandsins um vernd dýra við aflífun en hvor aðferð hefur sína kosti og sína galla. Rafdeyfing hefur umsvifalaust áhrif en þau vara stutt. Koltvísýringur veldur ertingu á slímhúð en er talinn áreiðanlegur og varanlegur aðferðarkostur og er algengasta aðferðin í stærri sláturhúsum víða um heim. Meginreglan er þó skýr: Dýr skulu svipt meðvitund áður en aflífun fer fram.

Tannklipping svína er óheimil hérlendis og ekki framkvæmd. Röspun vígtanna er hins vegar heimil við sérstakar aðstæður þegar sýnt þykir að tennurnar hafi valdið skaða á móður eða gotsystkinum. Matvælastofnun hefur ekki orðið vör við brot gegn banni við tannklippingum með sitt eftirlit.

Spurt var um halaklippingar á grísum en hún er framkvæmd þegar brýn þörf er talin á slíkri aðgerð að mati dýralæknis. Í mesta lagi má þá stytta hala um helming. Þetta er gert vegna hættu á halabiti frá öðrum svínum en slík halabit geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir velferð dýra, m.a. sýkingar og langvarandi sársauka. Þetta hefur reynst þrálátt vandamál hérlendis og samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar eru grísir halaklipptir á öllum giltum búum landsins. Við slíka aðgerð er beitt verkjastillandi meðferð og hún er eingöngu framkvæmd af dýralækni eða starfsfólki sem hefur fengið til þess leyfi frá Matvælastofnun. Stofnunin hefur nýlega boðað hertan ramma um undanþágur til halaklippinga. Beiðnum um þær þarf að fylgja áhættu- og stöðumat varðandi halabit á búinu og horft er til þess að gerð verði krafa um að starfsmenn sem sinna halaklippingum þurfi að standast viðurkennt námskeið. Reynsla Norðurlanda sýnir að bætt rými og aðbúnaður eru lykilatriði til að draga úr halabiti en með bættum aðstæðum má því vonast til að þörf fyrir halaklippingar minnki verulega.

Samkvæmt skráningum í eftirlitsgagnagrunnni Matvælastofnunar hafa á síðustu tíu árum, frá árinu 2016, verið gerðar 28 athugasemdir við eftirlit á svínabúum þar sem um frávik frá ákvæðum laga eða reglugerða var að ræða. Af þessum tilvikum voru tvö flokkuð sem alvarleg. Engar stjórnvaldssektir hafa hins vegar verið lagðar á vegna þessara frávika en áhersla hefur verið lögð á úrbætur og fyrirbyggjandi aðgerðir. Skýrslan gerir grein fyrir því að stjórnvöld þurfi að líta til samkeppnishæfni, kostnaðar og efnahagslegra áhrifa við útfærslu reglna en jafnframt er skýrt að velferð dýra er meginmarkmið og hefur sjálfstætt gildi. Það er sú afstaða sem byggt er á.

Virðulegi forseti. Skýrslan sýnir að regluverk er til staðar, eftirlit fer fram og aðgerðir eru í þróun. Hún sýnir jafnframt að áskoranir eru fyrir hendi og umbætur taka tíma, bæði tæknilega og fjárhagslega. Ábyrgð okkar er tvíþætt; að standa vörð um velferð dýra og að tryggja að innleiðing reglna sé raunhæf og markviss. Með hertu eftirliti, færri undanþágum og markvissri aðlögun er markmiðið að draga úr þörf á inngripum á borð við halaklippingar (Forseti hringir.) og bæta aðbúnað til framtíðar.

Ég legg skýrsluna hér með fram til umræðu og hlakka til umræðunnar hér á eftir.