157. löggjafarþing — 70. fundur,  16. feb. 2026.

aðbúnaður og velferð svína.

78. mál
[17:13]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Forseti. Við ræðum hér skýrslu atvinnuvegaráðherra um aðbúnað og velferð svína samkvæmt beiðni Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur og fleiri hv. þingmanna. Ég hafði í hyggju hér fyrir fram að grípa á nokkrum stöðum niður í þessa skýrslu. Hún er um margt ágæt, bæði að mati þess sem hér stendur og eins þeirra svínabænda sem ég hef heyrt í, margt ágætt í skýrslu hæstv. ráðherra. Ég ætla þó ekki alveg að láta vera að bregðast við ræðunni sem var flutt á undan mér af hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni sem fjallaði reyndar, ef ég hef tekið rétt eftir og held að ég hafi gert það því að ég hlustaði talsverðri athygli á hv. þingmann, reyndar að minnstu leyti um eða a.m.k. litlu leyti um aðbúnað svína. Hv. þingmaður velti sér meira upp úr eða í það minnsta jafn mikið upp úr hlutum eins og hvernig við aflífum önnur dýr og umgöngumst önnur dýr og vitnaði þar til búgreinar sem við köllum öllu jafna blóðmerahald og var með svona grafískar, svolítið blaðamannslegar tilvitnanir og lýsingar á því hvernig það fer fram. Það finnast nefnilega skussar í öllum greinum þannig að það er yfirleitt auðvelt að sækja sér slík dæmi. Þeir finnast líka í hópi þingmanna, skussarnir finnast þar líka, þeir finnast líka í hópi blaðamanna og hafa gert lengi þannig að mér finnst ekki rétt að taka heilu búgreinarnar hér fyrir á grundvelli einhverra fárra undantekninga. Hv. þingmaður nefndi líka að við værum enn að lokka refi í æti til að skjóta þá á færi, frú forseti. Ég veit ekki hvort þingmaðurinn vill lokka þá inn í stofu og skjóta þá innan dyra, ég bara átta mig ekki á svona málflutningi.

En aftur að því sem kannski á að vera hér til umfjöllunar, sem er þessi skýrsla hæstv. ráðherra. Hún er, eins og ég sagði, að mörgu leyti ágæt og margt gott sem kemur þar fram. En það eru samt ákveðin rauð flögg sem ég sé fyrir mér. Byrjum á því að ganga út frá þeirri staðreynd, frú forseti, að bændur vilja dýrum sínum vel. Það er meginregla þegar við förum um sveitir landsins að bændur vilja bústofni sínum vel, enda eru afurðir bænda iðulega í samræmi við það hversu vel þeim tekst að ala og hirða sín dýr. Og svo hér í örlitlu framhjáhaldi, hæstv. ráðherra, það má líta á þetta sem galsaskap ef menn kjósa svo, þá hefði ég líka haft áhuga á að fá skýrslu um afkomu svínabænda undanfarin ár. Það myndi kannski útskýra að einhverju leyti hvers vegna innleiðing á bættri aðstöðu hefur tekið lengri tíma en við hefðum kannski viljað. Eitt af því sem þar kemur til og er einn augljós þáttur í málinu er hvernig við höfum sem þjóð verið að gefa æ meira eftir í því sem í daglegu tali er kallað tollvernd, sem er ekkert annað en varðstaða um heilbrigða íslenska framleiðslu. Ef við ætlum að ætlast til þess að við séum fremst meðal þjóða hvað varðar dýravelferð, sem er gott markmið, þá verðum við að gera sömu kröfur til annarra framleiðenda annars staðar sem eru líka að framleiða fyrir íslenskan markað. Við höfum, eins og staðan er í dag, frú forseti, enga leið til að átta okkur á því í fjölmörgum tilfellum hvaðan varan er að koma sem við erum að neyta. Það getur verið pakkning sem á stendur að við séum að kaupa íslenska framleiðslu af því að kjötið var skorið og kryddað og því pakkað hér. Svo skoðar þú betur og þá erum við að tala um innflutning frá Danmörku sem er ekki einu sinni víst að sé frá Danmörku heldur var dýrið selt til Danmerkur fyrst áður en það kom til Íslands, allt svo afurðirnar. Það getur verið frá Rúmeníu þess vegna. Ég spyr því á móti — og ég ber mikla virðingu fyrir því þegar fólk brennur fyrir, hvort sem það eru hv. þingmenn eða aðrir, velferð dýra, en þá verðum við að láta okkur þykja jafn vænt um öll svín. Við getum ekki sett íslenska bændur í þá stöðu að eiga að keppa við einhvern markað sem lýtur allt öðru regluverki nema við verjum þá samtímis íslenska framleiðslu. Til þess höfum við verkfæri. Við verjum það með tollum til að mynda, við verjum það með fræðslu um íslenskar afurðir og hvað þær hafa umfram, í okkar nútímalega regluverki, framleiðslu annars staðar. En ef við gerum bara annað af þessu, förum bara í að auka kvaðirnar en hjálpum ekki til við verndina, þá stuðlum við að auknu dýraníði. Þá minnkar búskapur hér heima þar sem við treystum okkur til að hafa með honum eftirlit og eykst þar sem regluverk og eftirlit er minna.

Svona þarf nú stundum, frú forseti, að hugsa hlutina í aðeins stærra samhengi. Ég skoðaði fyrir ekki margt löngu síðan svínabú í Eyjafirði, nýlegt svínabú, þar sem aðstaða var öll hin glæsilegasta og metnaður eiganda og rekstraraðila til mikils sóma og það held ég að sé meginhugarfarið í landbúnaði okkar yfirleitt, ekki bara í svínarækt. Bændur vilja, eins og við hin sem eigum kannski gæludýr eða erum í einhverjum tilfellum að halda skepnur, stórgripi, á þeirri forsendu að við aðhyllumst hestamennsku eða eitthvað slíkt, skepnunum hið besta. En við getum ekki ætlast til þess að grein eins og svínaræktin lifi það af að við aukum bara alltaf á kvaðirnar en hjálpum greininni aldrei að verja sig.

Í þessu samhengi, til að átta sig örlítið á stærðarhlutföllum, hvað við erum lítil og hvað við erum að verja ofboðslega litla en þó verðmæta framleiðslu, þá vil ég nefna fyrirtæki eins og stolt þeirra Dana, sem reyndar er komið núna í umtalsverð vandræði vegna regluverks og fyrirhugaðs regluverks sem þó er frestur til að fullinnleiða til 2035, mun lengri frestur en er hér hjá okkur sem er aðeins til 2028. Það tæki þetta fyrirtæki kannski eina þrjá sólarhringa — og ég ætla að nota hugtakið að slátra því að mér finnst það eiga ágætlega við þegar við tölum um dýr sem eru alin til manneldis. Við þurfum að slátra þeim á einhverjum tímapunkti þó að vissulega geti okkur greint á um hvað sé mannúðlegasta aðferðin til þess. En það tæki þetta fyrirtæki, frú forseti, kannski þrjá sólarhringa að slátra íslenskri svínarækt. Það sem það fyrirtæki getur framleitt á þessum þremur sólarhringum er það sem við getum gert á einu ári. Þetta er það sem við erum að keppa við, hæstv. ráðherra. (Atvvrh.: Stöndum vel …) Við stöndum vel en m.a. vegna þess að við höfum ekki farið fram í einhverju offorsi, í einhverjum dyggðaskreytingum til að reyna að setja okkar framleiðslu í eitthvert allt annað umhverfi heldur en framleiðslu annarra án þess að gefa þá framleiðslunni vernd á móti. Hið sama er núna að gerast hvað varðar holdanautin í kjötframleiðslunni. Þar er tollverndin horfin. Og við höfum ekkert um það að segja hvernig gengið er um holdanaut í Rúmeníu en við hins vegar neytum kjöts alls staðar að úr heiminum.

Frú forseti. Þetta er mikilvæg umræða og ég fagna henni en pössum okkur á dyggðaskreytingunum og knésetjum ekki heila atvinnugrein út af tilfinningum.