157. löggjafarþing — 70. fundur,  16. feb. 2026.

aðbúnaður og velferð svína.

78. mál
[17:22]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir að hafa frumkvæði að því að kalla eftir þessari skýrslu. Sömuleiðis vil ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og flutning á skýrslunni. Nú vill þannig til að ég var búinn að lesa þessa ágætu skýrslu áður og síðan hlustaði ég á ræðu hv. þm. Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur og ég velti því fyrir mér hvort ég hefði eitthvað misskilið í skýrslunni sem ég las. Aðrir verða að svara því en ég met það þannig að sú mynd sem er dregin upp í skýrslunni sem hæstv. ráðherra flutti hér áðan sé á þann veg að íslenskir svínabændur séu svona heilt yfir að standa sig hreint ágætlega, það er alla vega minn skilningur. Vissulega eru frávik og ætla ég alls ekki að gera lítið úr því, frú forseti. Þó að gerðar séu athugasemdir í 28 skipti, held ég — síðan 2016, samkvæmt skýrslunni eru það 28 skipti — er það mikið eða lítið? Ég er ekki dómbær á það og ég held að við ættum að fara varlega í það, hv. þingmenn, að draga ályktanir og vera hér með stóra dóma. Við skulum setja þetta í samhengi eins og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson gerði áðan í hreint ágætri ræðu. Við gerum kröfur og á sama tíma eru okkar bændur í samkeppni á hinum stóra markaði úti í heimi. Við höfum sömuleiðis farið fram, hið opinbera, með fjárfestingarstuðning til svínabænda og er það vel.

Ég tek undir með hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur hvað það varðar að taka ákveðið skref og auka rými og annað svo að menn þurfi ekki að stunda þessar halaklippingar. En um leið og við gerum þær kröfur til bænda, að þeir uppfylli ákveðnar kröfur, þá verður eitthvað að fylgja með. Þá verðum við að horfa til þess að við verðum að geta aðstoðað á. Þó að verið sé að veita hér ákveðnar undanþágur og lengja í, við þekkjum alla þá umræðu, þá erum við að tala um gríðarlegar fjárfestingar. Ef ég hef tekið rétt eftir hjá hæstv. ráðherra eru það um 400 til 500 milljónir sem hafa farið út á undangengnum tveimur árum hvað þetta varðar. Þá get ég tekið ákveðið viðmið á því svínabúi sem er í uppbyggingu frammi í Eyjafirði, á Sölvastöðum, sem er til algjörrar fyrirmyndar; það er fyrst og fremst gyltubú sem búið er að setja upp þar, hitt er eftir. Og gyltubúið eitt og sér kostar fleiri hundruð milljónir. Til að vera ekki að kasta hér tölum út í loftið þá segi ég án ábyrgðar, frú forseti: Þetta eru 500, 600, 700 eða 800 milljónir sem þetta gyltubú kostar og við erum stolt af því og berum mikla virðingu fyrir því sem þeir framleiðendur eru að gera í sinni framleiðslu. En við verðum þá, ef við gerum sömuleiðis kröfu til hinna, væntanlega að koma til móts við þá. Ég veit vel að uppbyggingin á þessu svínabúi naut fjárfestingarstuðnings og það er mikilvægt.

Það kemur sömuleiðis fram í skýrslunni að okkur hefur gengið ágætlega hvað það varðar að auka lausagöngu hjá gyltum. Það er, held ég, einungis á einu búi, samkvæmt þessari skýrslu, þar sem gyltur eru bundnar á bása. Það er þannig með alla framleiðslu, og það hefur komið fram í máli hv. þingmanna, að heilt yfir eru íslenskir bændur að gera eins vel og þeir geta. Við eigum að láta meiri hlutann njóta vafans í því en taka síðan á þeim frávikum sem upp koma hverju sinni. Það er því miður allt of algengt í umræðunni að frávikin taki heilu búgreinarnar algerlega yfir. Þetta þekkjum við vel, t.d. í umræðum um blóðmerahald; þá hafa þeir sem hafa ekki fylgt þeim reglum sem settar eru sett svartan blett á alla framleiðsluna. Það sama á við, hvort sem það er í uppeldi á svínum, nautgripum, sauðfé eða hrossum og við getum haldið þannig lengi áfram. Ég bið því hv. þingmenn og alla þá sem taka þátt í þessari umræðu að gæta sanngirni. Þetta er góð skýrsla sem hæstv. ráðherra flutti fyrir okkur hér áðan og hún endurspeglar ekki það sem hv. þm. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir sagði í sinni ræðu. En ég ítreka það, frú forseti, að ég ætla að reyna að lesa skýrsluna aftur hér undir þessari umræðu og vita hvort ég hafi skilið þetta algerlega rangt. Miðað við ræðu hæstv. ráðherra þá held ég að ég hafi verið með svipaðan skilning á skýrslunni og hæstv. ráðherra flutti.

Frú forseti. Það er vissulega gott að gera kröfur til framleiðslunnar, við viljum gera vel. En veitum þá þeim bændum sem við erum að gera kröfu til tækifæri til þess að geta staðið undir þeim kröfum. Hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson kom t.d. inn á það sem snýr að tollverndinni, en tollvernd og fjárfestingarstuðningur til þessara framleiðenda er lykilatriði í því (Forseti hringir.) að við getum haldið áfram að þróa okkar góðu svínarækt hér á landi. Og við skulum ekki gleyma því, frú forseti, (Forseti hringir.) og ég biðst afsökunar, að hér á landi (Forseti hringir.) er notað það allra minnsta sem þekkist af sýklalyfjum og alls konar lyfjum til framleiðslu á okkar kjöti. Við skulum hafa það í huga í þessari umræðu.