aðbúnaður og velferð svína.
Frú forseti. Við ræðum hér skýrslu atvinnuvegaráðherra um aðbúnað og velferð svína samkvæmt skýrslubeiðni hv. þm. Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur og fleiri alþingismanna. Ég get svo sem tekið undir það sem kom fram í máli hv. þingmanna hér áður í umræðunni að skýrslan er bara nokkuð með sitt á hreinu, en umræðan hefur kannski farið svolítið í aðrar áttir en bara um skýrsluna.
Það kemur fram í skýrslunni að regluverk um velferð svína á Íslandi byggir á ákvæðum laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og reglugerð um velferð svína, nr. 1276/2014 með síðari breytingum, þar sem kveðið er á um lágmarkskröfur varðandi aðbúnað, umönnun, heilbrigði og almenna meðferð svína. Markmiðið og áherslur regluverksins eru skýrar og miða að því að tryggja að svín búi við góða velferð, þau séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma. Regluverkið byggi á þeirri viðurkenningu að dýr séu skyni gæddar verur sem eiga rétt á að geta sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt, sbr. 1. gr. laga um velferð dýra.
Í regluverkinu eru ákveðnar undanþágur sem víkja frá almennum reglum í ákveðnum tilvikum. Þessar undanþágur eru ætlaðar til þess að veita ákveðinn sveigjanleika eða til að mæta sérstökum aðstæðum, án þess þó að ganga á grundvallarmarkmið um velferð svína. Matvælastofnun hefur t.d. heimild til að veita framleiðanda frest til að aðlaga sig að skilyrðum sem varða lausagöngu svína, sbr. 2. mgr. 7. gr., og ákvæðum um rými í stíum og legurými, samanber 2. og 7. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar til 1. janúar 2028.
Sá sem hér stendur, kannski eins og fleiri þingmenn úr Norðausturkjördæmi, sem eru þó nokkrir sem hafa tekið þátt í þessari umræðu, hefur skoðað svínabúið á Sölvastöðum frammi í Eyjafjarðarsveit, sem ég held að sé að einhverju leyti fyrirmynd, sú uppbygging, að því hvernig á að standa að málum til að standast reglugerðir sem eru varðandi svínaræktina. Búið er til mikillar fyrirmyndar og ég hvet hv. þingmenn að kynna sér það sem eiga leið um Eyjafjarðarsveit, Ingvi Stefánsson bóndi þar og hans fjölskylda hafa byggt upp mikið fyrirmyndarbú, gyltubú.
Umræðan hér í dag hefur kannski helst snúist um halaklippingar. Ísland hefur fylgt Evrópu hvað þetta varðar. Almenna reglan er sú að halaklippingar eru bannaðar en svo hafa bændur almennt á forsendum dýravelferðar fengið undanþágu til að klippa hala grísa. Á Íslandi er þetta gert í samráði við þjónustudýralækni búsins sem sækir um undanþágu fyrir halaklippingum til Matvælastofnunar. Grísum er þá áður gefið verkjastillandi lyf. Allir starfsmenn svínabúa sem stunda halaklippingar verða að sækja námskeið. Þetta er gert til að varna því að grísir fari að naga eða bíta hala á öðrum grísum, en ef halabit kemur upp getur það haft í för með sér slæmar afleiðingar og valdið miklum sársauka og sýkingum hjá grísum þannig í grunninn er þetta dýraverndunarmál, ef nauðsyn er á þessari aðgerð.
Síðan er kannski hinn þátturinn, varðandi lið 3 í beiðninni þar sem er spurt: Hversu algengt sé að klippa tennur svína til að draga úr hættu á halabiti? Það kemur fram í skýrslunni og þegar maður hefur spurst út í þetta þá kemur fram að þetta hefur sem sagt ekki verið gert á íslenskum svínabúum í einhvern áratug eða tvo. En það er þekkt að einhverjir bændur slípa af vígtönnum grísa skömmu eftir fæðingu, það kemur fram í skýrslunni að það megi gera á fyrstu þremur, fjórum dögunum eftir got, en passa að fara ekki niður að kviku. Þetta er gert til að varna því að grísir rífi spenann á gyltum. (Forseti hringir.) — Ég sé að tíminn er liðinn þannig að það verður ekki víðar farið í þessari ræðu, frú forseti.