aðbúnaður og velferð svína.
Frú forseti. Ég ætla að þakka hv. þingmönnum, fyrst og fremst framsögumanni eða skýrslubeiðanda, Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, og öðrum þeim þingmönnum sem tóku til máls, fyrir góða umfjöllun um mál sem stendur okkur öllum nærri, treysti ég mér til að fullyrða, þ.e. að við höfum dýravelferð í huga alltaf þegar um matvælaframleiðslu er að ræða en þegar um er að ræða matvælaframleiðslu eins og í þessu tilfelli.
Mig langar kannski að nota tækifærið hér og bara að nefna það að við erum með vinnu í gangi í atvinnuvegaráðuneytinu sem lýtur að endurskoðun á lögum um dýravelferð sem ég bind vonir við að ég nái að leggja fram á næsta þingvetri. Það er endurskoðun sem unnið hefur verið að í töluverðan tíma. Þetta eru eins og önnur lög, geta verið barn síns tíma ef þau eru ekki endurnýjuð reglulega. Þar verður farið yfir þessi mál í heild sinni.
Ég heyri að margir þingmenn komu mjög víða við þegar verið var að tala um dýravelferð og fóru út fyrir svínaræktina sjálfa. En hér var auðvitað farið yfir þau atriði sem komu fram í skýrslunni. Við erum að tala um að það er halabitið sem stendur í okkur mörgum. Matvælastofnun hefur hert þann ramma. Það er verið að taka eftir því, vinna eftir því. Það hefur verið nefnd hér þörf á frekari fjárfestingu í stuðningi til bænda. Hann hefur verið umtalsverður, hleypur á hundruðum milljóna. Og það er alveg rétt að þetta er stór biti fyrir mörg búin, en það er líka rétt að taka það fram að stærsti svínaframleiðandinn er í mjög góðum rekstri og skilar góðum hagnaði þannig að þetta er ekki algilt. En við erum auðvitað bara að fylgjast mjög vel með þessu. Það eru líka margir svínaræktendur sem hafa staðið í stappi við bara reglugerðarfargan þegar kemur að því að breyta búunum sínum. En það er nú annað sem á að vera útlátalítið að laga þar eins og annars staðar. Og svona mætti lengi telja.
Stóra málið er þetta: Ég tek með mér, sem atvinnuvegaráðherra, upp í ráðuneyti og í vinnuna fram undan þessa hvatningu þingmanna hér að huga vel að þessum málum á sama tíma og við leggjum okkur fram (Forseti hringir.) við að tryggja hag svínabænda líkt og annarra bænda í þessari mikilvægu matvælaframleiðslu. Þetta á að geta farið saman og þetta þarf að fara saman og það er okkar að búa svo um hnútana að svo geti verið. — Takk fyrir umræðuna.