Störf þingsins.
Frú forseti. Grunnskólar eru þverskurður samfélagsins. Þar birtast bæði veikleikar og styrkleikar þess. Á undanförnum árum hef ég heyrt í fyrrverandi kollegum mínum sem tala um sívaxandi áskoranir sem tengjast hröðum samfélagsbreytingum, fjölgun nemenda með annað tungumál og annan menningarbakgrunn en við. Þessi texti er fyrir þá. Um 20% nemenda í Reykjavík eru ekki með íslensku sem móðurmál. Að kenna í bekk þar sem nokkrir nemendur tala hvorki íslensku né ensku er mikil áskorun. Í sumum tilvikum hafa komið upp atvik sem voru sjaldséð og benda til þess að aðlögun hafi ekki tekist sem skyldi. Í sumum upprunaríkjum flóttafólks eru mannréttindi, jafnrétti kynjanna, réttur barna og virðing fyrir réttarríkinu ekki virt með sama hætti og á Vesturlöndum. Það getur skapað vanda. Starfsmenn skóla verða t.d. vitni að alls konar mögulegri misnotkun á reglum um fjölskyldusameiningu. Konur eru giftar mönnum sem þurfa leið inn í landið. Slíkt getur endurtekið sig án þess að raunhæf úrræði séu til staðar þar sem erfitt er að sanna slíkt. Í sumum skólum hafa einnig komið upp alvarleg samskiptavandamál þar sem virðingu gagnvart konum og stúlkum er ábótavant, einkum hjá drengjum og feðrum sem hafa alist upp í ólíkri menningu og þrátt fyrir mikla vinnu skóla og félagsþjónustu. Það hafa komið upp tilvik þar sem einstaklingar, með eða án flóttamannaverndar, ferðast reglulega til heimalandsins í læknisaðgerðir, til að heimsækja ættingja eða fara í stórafmæli með þeim afleiðingum að börn eru frá skóla vikum saman. Auðvitað á þetta ekki við um alla en við verðum að ræða þessar áskoranir af ábyrgð og raunsæi. Við verðum að tryggja að innviðir okkar ráði við breytingarnar, kennaranna okkar og barnanna okkar vegna.