157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

Störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Karólína Helga Símonardóttir (V):

Virðulegur forseti. Í heimi þar sem togstreita, óvissa og átök hafa aukist á ný er mikilvægt að smáríki á borð við Ísland tali skýrt og af festu nú meira en nokkru sinni fyrr. Sterk rödd Íslands á alþjóðasviðinu er ekki bara spurning um hagsmunagæslu. Hún er spurning um gildi, þau gildi sem samfélag okkar byggir á og reynast okkur best; lýðræði, frelsi, jafnrétti og mannréttindi. Íslenskt samfélag stendur saman þegar á reynir og sú rödd á erindi við fleiri en okkur sjálf. Við erum friðelskandi þjóð. En friðurinn er ekki sjálfgefinn og hann þarf að verja.

Í störfum hæstv. utanríkisráðherra birtist þessi afstaða með virkri þátttöku í alþjóðasamstarfi og markvissri baráttu gegn mannréttindabrotum. Þar leggjum við áherslu á að alþjóðleg gildi jafnt fyrir alla og brot gegn borgurum verði aldrei réttlætt. Rödd Íslands snýst um vernd mannréttinda en ekki síður um vernd lýðræðis og sjálfsákvörðunarrétt ríkja. Okkar eigin saga kennir okkur að sjálfstæði er ekki sjálfgefið. Þess vegna ber okkur skylda til að standa með þjóðum sem vilja ráða eigin framtíð og hafna þvingunum og yfirráðum. Í heimi þar sem sum ríki leitast við að breyta landamærum með valdi og grafa undan alþjóðalögum megum við ekki draga okkur í hlé. Við eigum að efla samstarf við bandalagsríki og vinna náið með nágrannaþjóðum okkar. Þögn er ekki hlutleysi, hún er afstaða. Ísland hefur kosið að láta rödd sína heyrast.

Virðulegi forseti. Sterk rödd Íslands er framlag okkar til friðar, til lýðræðis og frelsis og til þess að komandi kynslóðir búi í heimi þar sem lög en ekki vald ráða för.