umræða um veiðistjórn grásleppu.
Frú forseti. Í framhaldi af því sem hv. þm. Bergþór Ólason flutti okkur hér vil ég nefna að ég sat þennan fund í hv. atvinnuveganefnd og þetta kom í rauninni mjög á óvart. Það var skilningur okkar þingflokksformanna, virðulegur forseti, að það væri samkomulag hér um að hið svokallaða grásleppumál færi ekki á dagskrá þingsins fyrr en búið væri að fá niðurstöðu í það er varðaði beiðni atvinnuveganefndar um lögfræðiálit tengt því að hér væri um að ræða stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi. Mig langar til þess að hæstv. forseti skýri þá frá því hér eða boði okkur þingflokksformenn annars á fund um það hvað hefur nákvæmlega breyst í þessu máli því að við höfðum ekkert heyrt af neinni breytingu fyrr en hún kom fram á fundi nefndarinnar í morgun.