157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:05]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Það er, að ég held, a.m.k. í seinni tíma sögu nefndastarfsins hér á Alþingi, fordæmalaust, í öllu falli fordæmalítið, að nefnd snúi við ákvörðun sem þessari án nokkurs samtals í nefndinni að því er virðist algerlega á skjön við þær upplýsingar sem þingið hafði veitt fulltrúum minni hlutans í nefndinni. Það liggur fyrir að fulltrúar minni hlutans áttu fund með sérfræðingum nefndasviðs til að forma þessa úttekt sem var búið að samþykkja þann 3. febrúar að yrði unnin. Hvað breyttist? Það verður að útskýra þetta fyrir okkur sem sitjum í þessari nefnd og raunar þingmönnum öllum, því ef þetta er verklag ríkisstjórnarinnar þá erum við á enn verri stað en ég taldi okkur vera síðasta sumar.

Ég biðla til virðulegs forseta að leiða þetta með einhverjum hætti í jörðu, hvort sem það er á fundi þingflokksformanna eða með öðrum hætti, því að núverandi staða er fullkomlega óboðleg fyrir okkur sem hér sitjum (Forseti hringir.) og þurfum að greiða atkvæði um mál þegar þau koma til lokaafgreiðslu.