umræða um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Maður er orðinn vanur ýmsu á vettvangi atvinnuveganefndar núna á þessu kjörtímabili í vinnubrögðum en það tók alveg steininn úr í morgun. Það hefur verið ágætlega farið yfir það hér hvernig þessar ákvarðanir meiri hlutans komu okkur algjörlega í opna skjöldu. Við töldum okkur hafa náð samkomulagi við forseta um að hann vísaði málinu, eftir framsögu meirihlutaálits hér um þetta mál, til nefndarinnar aftur til að boða þá gesti sem óskað var eftir. Við höfðum óskað eftir tveimur gestum alveg frá því í haust, þannig að ekki erum við að tefja málið. Annars vegar ákveðnum aðila úr atvinnuvegaráðuneytinu, sem kom fyrir nefndina og var mjög skýr í sínum málflutningi og ráðleggingum til nefndarinnar, og hins vegar forstjóra Fiskistofu. Því hefur verið hafnað og þar er auðvitað verið að brjóta á réttmætum rétti okkar í minni hlutanum til að geta kallað fyrir gesti, einn gest. Við erum síðan sökuð um að ætla að tefja málið (Forseti hringir.) af því að nú liggi svo ofboðslega mikið á að klára það af því að menn eru komnir til veiða á grásleppu. Það má vel vera að fólki finnist ekki mikið koma til þess (Forseti hringir.) hvern sess grásleppuveiðar skipa í okkar samfélagi en hér er það spurningin um stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi fólks sem er undir og það er stórmál.