157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:09]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég kem hér upp í sömu erindagjörðum og félagar mínir í minni hlutanum í atvinnuveganefnd Alþingis og leita liðsinnis forseta þess efnis að ég held að það væri mjög æskilegt að fundinn yrði nú einhver flötur á því að leiða þetta í jörð og það væri æskilegt að gera það fyrr en seinna svo þingstörf geti haldið áfram með góðu móti.

En ég vil sömuleiðis, virðulegur forseti, að það komi fram að starfsandi innan atvinnuveganefndar hefur nefnilega verið hreint með ágætum eftir að hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir tók við stjórn nefndarinnar og því finnst mér það skjóta skökku við að brjóta upp þann góða starfsanda sem hefur verið í nefndinni undanfarið hjá okkur, að svona lagað skuli nú fara. Því held ég að það væri mjög æskilegt fyrir forseta að hlutast til í málinu og leiða þetta í jörð og við getum þá haldið hér áfram þingstörfum.