157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:11]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegi forseti. Af máli þingmanna sem sitja í hv. atvinnuveganefnd, sem ég geri ekki, er að teiknast upp einhver mynd, eitthvert munstur þegar kemur að afgreiðslu mála frá þingmönnum eða ráðherrum Flokks fólksins. Ég set þetta í samhengi við t.d. það mál sem var rætt ítarlega og var til atkvæðagreiðslu í gær, um launavísitölu. Því var vísað til hv. velferðarnefndar, þar sem ég sit, milli 2. og 3. umræðu en ég er að fá fundarboð núna um það að málið verði tekið strax aftur úr nefndinni á morgun, þótt því hafi verið vísað til nefndar til að fá sérstaklega umræðu um málið og umsagnir þeirra sem hafa verið að tjá sig utan þings um þetta mál. Þetta virðist vera eitthvert munstur sem á bara við mál frá Flokki fólksins, ákaflega furðulegt. Grásleppumálið endurspeglar þetta núna og er sett á dagskrá. Ég biðla til forseta Alþingis að eiga a.m.k. fund með þingflokksformönnum til að ræða dagskrá dagsins.