umræða um veiðistjórn grásleppu.
Frú forseti. Að mér setur kaldan hroll. Ég er einhvern veginn andlega staddur núna á svipuðum tíma og fyrir ári síðan eða síðastliðið vor kannski öllu heldur. Þegar mál koma hér inn, þingmannamál í þessu tilfelli, og maður heyrir einstaklinga sem eiga sæti í hv. atvinnuveganefnd lýsa því að þeir hafi ekki fengið að hitta þá gesti sem þeir óskuðu eftir, jafnvel lykilaðila í umsögnum og umfjöllun um þetta mál, þá ósjálfrátt hvarflar hugurinn aftur til síðastliðins vors. Ég trúi því ekki, frú forseti, að við ætlum að steyta á þessu skeri aftur. Verkstjórn forseta skiptir hér öllu máli. Ég biðla til forseta að beita sér í þessu máli, málið verði tekið af dagskrá og nefndin fái það aftur til umfjöllunar, því að við getum ekki siglt þessu fleyi okkar allt til sumars í þeim anda sem hér ríkti síðasta vor og sumar.