umræða um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Látum liggja á milli hluta hvað málið er efnislega slæmt og hvað það hefur gríðarlega mikil áhrif á þá sem eru að veiða grásleppu. Látum það liggja á milli hluta að þeir sem veiða grásleppu í dag eru að fara að missa vottun á grásleppuveiðarnar, missa MSC-vottunina með tilheyrandi verðlækkun. Látum það liggja á milli hluta að hér sé verið að vega að sjálfbærum og ábyrgum veiðum og nýtingu fiskstofna við Íslandsstrendur. Við skulum láta það liggja milli hluta, en við skulum tala efnislega um afgreiðslu málsins og hvernig verið er að keyra þetta mál í gegn, virðulegur forseti. Eins og fram hefur komið eru þessi vinnubrögð ekki boðleg og það er ótrúlegt að hér trekk í trekk sé það alltaf að gerast í sömu nefndunum, frá sama flokki sem stýrir þessum nefndum þar sem allt er í uppnámi og vinnubrögðin fyrir neðan allar hellur. Ég skora á virðulegan forseta að gera hlé á þingfundi og kalla til þingflokksformenn til að ræða þetta mál. Þetta er grafalvarlegt mál.