umræða um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Það vekur manni óhug hversu oft það kemur upp hér að við séum upptekin við að ræða vinnubrögðin í þinginu og hvernig við rækjum störf okkar til að hafa málin vel unnin og kafa ofan í afleiðingarnar af því sem við erum að gera. Síðast í morgun vorum við að ræða það við Seðlabankann á opnum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd hvernig einmitt öll varnaðarorðin sem voru sögð hér fyrir áramót varðandi hækkun skatta væru að raungerast í dag og hvað þetta væri óheppilegt. Nei, það má aldrei vinna þetta, má ekki gera áætlanir, má ekki hlusta á þá sem best til þekkja og bregðast við, þeim er það algerlega fyrirmunað hjá núverandi stjórnarmeirihluta. Og hér er enn eitt málið, meira að segja þingmannamál sem hefur ekki farið í gegnum þann samráðsferil og þá vinnu sem gerist í ráðuneytunum, svona vissan undirbúningsferil fyrir mál, og það á bara að afturkalla faglega vinnu — afturkalla faglega vinnu. (Forseti hringir.) Þetta er enn eitt málið þar sem á ekki að hlusta og þær afleiðingar munu raungerast sem er verið að vara við hér.