157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:20]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Enn erum við að ræða um vinnubrögð í nefndum og störf þingsins, hvernig þingið á að vinna. Það er nokkuð ljóst að á köflum virkar það ekki eins og það ætti að virka. Sjálfur sit ég í allsherjar- og menntamálanefnd og þar byrjuðum við að ákveðnu leyti brösuglega en það hefur gengið mjög vel upp á síðkastið. Við fáum fyrir nefndina það fólk sem við viljum fá fyrir nefndina, þrátt fyrir að á köflum finnist okkur kannski sumir ekki hafa mikið fram að færa. Hér er verið að tala um að fólk komist ekki fyrir nefndina sem menn vilja og að þetta sé, frú forseti, svo ég vitni nú bara í hv. þm. Lilju Rafneyju Gunnarsdóttur, (Gripið fram í: Magnúsdóttur ) pólitískt mál sem þarf að útkljá í þingsal.

Frú forseti. Hér er verið að tala um að trompa í raun umræðu og lýðræðið inn í þingnefndum með atkvæðagreiðslu. Það eru ekki boðleg vinnubrögð.