157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:21]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er mjög sérstakt að hlýða hér á þingmenn, sem eru sumir jafnvel nýgræðingur á þingi og taka ekki þátt í störfum atvinnuveganefndar, kveða upp dóma um störf og vinnubrögð í nefndinni. Það er fáheyrð vitleysa í rauninni (Gripið fram í.) að hv. þingmenn skuli gera þetta, þegar við stjórnvölinn er einn reyndasti þingmaðurinn á þingi sem hefur setið 13 þing, og gera því skóna að þessi vandaði og samviskusami þingmaður, hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir, sé með eitthvert fúsk, sé að fara fram með mál órædd. Það er ekki boðlegt, frú forseti. Mér finnst þetta vera eitthvað sem við eigum ekki að bjóða hvert öðru upp á hér í þinginu og alveg furðulegt. Það er verið að halda því jafnvel fram að gestum sé haldið í burtu. Það er ekki þannig. Það hefur bæði komið greinargerð og gestir frá Fiskistofu. Það sem deilan snýst um er að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar vilja að einhverju leyti handvelja gesti frá Fiskistofu og inn á nefndarfundi. (Forseti hringir.) Það er auðvitað eitthvað sem á ekki að sætta sig við.