157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:23]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Ég er með þykkan skráp eftir 13 ára setu á þingi, ekki alveg samfellt þó. Ég hef marga fjöruna sopið og oft hefur nú ýmislegt gengið á hér, pólitíkin er bara þannig. Hér er talað um fordæmalaus vinnubrögð. Ég get ekki skrifað upp á það. Ég spyr þá á móti: Voru það ekki fordómalaus og forkastanleg vinnubrögð þegar lög um grásleppu voru afgreidd hér vorið 2024 á tveimur dögum, 2. og 3. umræða? Lágu þá fyrir einhver lögfræðiálit frá Lagastofnun Háskóla Íslands eða greiningar á afleiðingum af því frumvarpi? Ég held að hv. þingmenn sem voru að störfum þegar það mál var lagt fram af þingmönnum atvinnuveganefndar þess tíma ættu að líta í eigin barm. Þessi vinna núna hefur staðið yfir í ár og er mjög vönduð. Málið er mjög vandað og þess vegna leggjum við það fram og teljum að það sé fullbúið hér til umræðu og afgreiðslu.