157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:24]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Þetta mál snýst nefnilega um pólitík, þetta snýst ekkert um neitt annað. Við í þessari ríkisstjórn viljum vinna með byggðunum og byggðasjónarmiðum. Við viljum ekki að grásleppa fari bara á fárra hendur sem hún stefnir í vegna þess að í ágúst byrjar framsal á þessum kvótum. Hér eru þessi lög, þessi slæmu lög, sem við erum núna að vinda ofan af. Þau voru sett, það var þingmannafrumvarp líka. Það var ekki lögð jafn mikil vinna í að vinna það og þetta frumvarp. Það var ekki kallað eftir öllum þessum álitum og þar voru fjölmargir sem misstu spón úr sínum aski og gátu ekki veitt lengur, jafnvel eftir að hafa veitt grásleppu í áratugi. Þetta snýst um pólitík og við erum ríkisstjórn sem stendur með fólkinu í landinu og gegn sérhagsmunum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)