157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:26]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er í raun alveg með ólíkindum að hlusta á málflutning hv. þingmanna stjórnarflokkanna. Gestum haldið í burtu. Handvelja gesti frá Fiskistofu. Við erum að biðja um forstjóra Fiskistofu, en þá er verið að handvelja. Við erum að biðja um forstjóra Fiskistofu. Það er sagt að þegar eldri lög voru sett þá hafi þau ekki byggt á neinum lögfræðilegum grunni, það hafi ekki legið fyrir nein lögfræðiálit. Það frumvarp var í grunninn frumvarp sem hafði verið lagt fram af sjávarútvegsráðherra, þ.e. atvinnuvegaráðherra, í tvígang í þinginu, unnið upp í ráðuneyti og varð að samkomulagi við ráðherrann að nefndin myndi flytja það.(LRM: Dregið til baka.)

Það kveður við kunnuglegan tón, við erum vænd um það í minni hlutanum að hafa ekki kynnt okkur málið, við höfum ekki lesið eða kynnt okkur málið. Við erum þó búin að fá hér einn helsta sérfræðing í sjávarútvegsmálum á Íslandi fyrir nefndina, loksins eftir margra mánaða bið, skrifstofustjóra sjávarútvegssviðs í atvinnuvegaráðuneytinu sem eindregið ráðlagði nefndarmönnum að fá lögfræðilega úttekt á þessu máli. Hann sagði að slík úttekt hefði ekki farið fram. Þetta hefði ekkert verið skoðað í ráðuneytinu. Það sama á við um lögfræðisvið þingsins. Þetta hefur ekkert verið skoðað þar. Við hvað eru menn hræddir? Og væna okkur svo um að tefja þetta mál. (Forseti hringir.) Það var verið að fjalla um það í nóvember í nefndinni, þá óskuðum við eftir þessu. Svo er þetta bara allt í einu komið á dagskrá núna. Þá óskuðum við eftir lögfræðiálitinu. (Forseti hringir.) Við komum með beiðnina, forseti sendir þetta til nefndarinnar, beiðni okkar kemur fram og við vitum ekki annað en það sé verið að vinna í henni, engar aðrar upplýsingar, nema það er í morgun (Forseti hringir.) að meiri hlutinn felldi það. Tveimur mánuðum eftir að það var samþykkt í nefndinni að leita skyldi álits (Forseti hringir.) Lagastofnunar, þá felldi meiri hluti nefndarinnar það í morgun. Hvað er verið að fela, virðulegur forseti, fyrir þjóð og þingi?

(Forseti (ÞSv): Forseti vill minna þingmenn á að virða ræðutímann.)