umræða um veiðistjórn grásleppu.
Frú forseti. Ég hugðist nú ekki koma aftur í fundarstjórn forseta enda hafði forseti brugðist við þeim óskum sem hér voru lagðar fram í fundarstjórn og hyggst gera hlé að loknum atkvæðagreiðslum og funda með þingflokksformönnum. Ég þakka fyrir það, frú forseti, að hér skuli vera hlustað á þessar óskir, enda var tilefnið ærið. En hverju verðum við vitni að í kjölfarið? Jú, til að mynda reynir hv. þm. Sigurjón Þórðarson að spilla fyrir fundarstjórn forseta. Það er augljóslega ekki minni hlutinn hér í salnum sem er að gera frú forseta erfitt fyrir í störfum sínum. Nei, það eru fulltrúar meiri hlutans.