umræða um veiðistjórn grásleppu.
Frú forseti. Jafn ágætt og það er að forseti hafi tilkynnt að hann sjái fyrir sér að boða þingflokksformenn til fundar að afloknum atkvæðagreiðslum, þá er sú leið í raun ekki fær eins og þetta mál liggur því að á þeim tímapunkti renna menn beint inn í umræðuna sem hér er verið að ræða um. Ég vil því hvetja virðulegan forseta til að gera hlé hið snarasta á þessum fundi, ræða við þingflokksformenn svo að menn átti sig á með hvaða hætti hæstv. forseti ætlar að stíga inn í málið. Það er allsendis útilokuð lausn á þessu máli að sá fundur eigi sér stað að afloknum öllum atkvæðagreiðslum, rétt u.þ.b. þegar við erum samkvæmt dagskrá að sigla inn í framhald 2. umræðu um þetta mál í ljósi þess hvernig um það er búið nú um stundir. Þannig að ég ítreka það að ég hvet virðulegan forseta til að boða til fundar hið snarasta, ekki að afloknum atkvæðagreiðslum. Á því er reginmunur og þarf ég þá ekki annað en að vísa í — við skulum segja að það sé hægt að orða það svona mildilega að í ljósi orða framsögumanns og flutningsmanns málsins (Forseti hringir.) þá sé lítil stemning fyrir því að bregðast raunverulega við ef þessir tveir hv. þingmenn verða spurðir.