umræða um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Ég vildi nefna það að ég tel farsælast fyrir störf þingsins hér í dag að það verði fundað með þingflokksformönnum fyrir atkvæðagreiðslu. Það eru boðaðar atkvæðagreiðslur í, að ég held, sex málum í dag og ég held að það væri farsælast fyrir þær atkvæðagreiðslur að fundað yrði áður en þær hæfust. Hins vegar verður ekki greint annað af máli þeirra þingmanna sem hafa komið upp til þess að ræða málsmeðferðina í hv. atvinnuveganefnd, sem ég tek fram að ég sit ekki í en hlýt að hlýða á mál þeirra sem þar sitja og þekkja til, en að hv. formaður atvinnuveganefndar hafi ekki gert athugasemdir við það að leitað yrði tiltekinnar umsagnar og það þannig samþykkt hér fyrir tveimur vikum. Nú kemur í ljós að það hefur ekki verið gert og þeirri spurningu hefur ekki verið svarað, sem hefur verið varpað fram, hvað hafi gerst nákvæmlega í dag í þessu máli sem kalli á það að þetta mál sé sett á dagskrá núna án þess að uppfyllt hafi verið sú afgreiðsla hv. atvinnuveganefndar að leita þessarar tilteknu umsagnar.