umræða um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa bent á það að virðulegur forseti ætti að funda sem fyrst með þingflokksformönnum og ræða þetta frekar þar. Svona samtal á miklu frekar að fara fram þar heldur en í þessari pontu. Hér eigum við að ræða efnislega um málið. Þetta mál er þannig búið að hér hafa framsögumenn og hv. þingmenn meiri hlutans komið upp og sagt að þetta sé vel unnið en þau geta ekki vitnað í neinn; enga stofnun, ekkert álit sem segir að þetta mál sé vel unnið og styðji … (LRM: Það er í greinargerðinni …) Greinargerðina sömdu þau sjálf og segja að hún sé vel unnin. Auðvitað segja þau það en þau geta ekki vitnað í einn einasta fagaðila sem staðfestir að hún sé vel unnin. Hvernig eigum við, virðulegur forseti, að fara í efnislega umræðu þegar meiri hlutinn þorir ekki að fá lögfræðiálit og afturkallar áður ákveðna beiðni um lögfræðiálit frá Lagastofnun Háskóla Íslands? (Forseti hringir.) Hvernig eigum við að geta rætt þetta mál efnislega og tekið ábyrga … (SigurjÞ: Með því að lesa greinargerðina. )Það hefur enginn staðfest að þessi greinargerð sé rétt, enginn.