157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:33]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Þegar ég heyrði að til stæði að funda með þingflokksformönnum hugsaði ég mér að hrósa hæstv. forseta fyrir þá ákvörðun sem mér sýnist mjög skynsamleg við þessar aðstæður. En tímasetningin, eins og hv. þingmenn hafa bent hér á, held ég að myndi skila meiri árangri ef hún yrði ívið fyrr en hæstv. forseti boðaði. Hér hefur verið bent á eitt og annað sem er ekki bara óhefðbundið heldur gengur gegn þeim reglum sem þingið og nefndir hafa starfað eftir. Það er auðvitað hlutverk forseta að reyna að tryggja að þingstörfin gangi sem best fyrir sig og að nefndavinna skili árangri. Ég staldra sérstaklega við það að tekin hafi verið ákvörðun um að biðja um skýrslu sem mér þykir líklegt að sé algjört grundvallarplagg í þessu, en svo hafi verið ákveðið að draga þá ákvörðun til baka. Hver getur verið ástæðan fyrir því önnur en ótti við staðreyndir, ótti við upplýsingar? Það gengur ekki fyrir þingið, frú forseti, að menn óttist staðreyndir og upplýsingar.