157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:35]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég vil bara koma hér upp og taka undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa komið upp á undan mér og hvetja forseta til þess að taka þennan fund áður en til atkvæðagreiðslu er haldið af því að annars erum við síðan bara að stefna beint inn í umræðu um viðkomandi mál. Vonandi verður þessi fundur með þeim hætti að við getum þá tekið þetta mál af dagskrá, haft einhver áhrif á það hvernig fundurinn þróast. En að fara í það eftir atkvæðagreiðslur, rétt áður en á að fara að ræða málið, held ég að sé ekki eins vel til þess fallið og að við gerum bara stutt hlé á þingfundi og höldum þennan fund núna, þingflokksformennirnir, til að fara yfir þetta mál. Og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar til að koma hingað upp og vera brúarsmiður og reyna að lægja öldurnar þá hefur það því miður ekki tekist hjá honum og ég held að það sé brýn þörf á að þingflokksformenn hittist sem allra fyrst.