beiðni um sérfræðiaðstoð.
Frú forseti. Ég vildi hér forvitnast um hvort vænta mætti viðbragða hæstv. forseta við beiðni okkar í minni hluta atvinnuveganefndar byggðri á grundvelli 62. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis er varðar það að ekki hafi verið brugðist með forsvaranlegum hætti við beiðni okkar um sérfræðiaðstoð. Þessi ósk mín var sett fram fyrir hönd stjórnarandstæðinga í atvinnuveganefnd í fundarstjórn við upphaf þingfundar, að afloknum störfunum, en ég hef ekki fengið nein viðbrögð við henni. Það blasir við í ljósi þess að beiðnin, sem var tilbúin í gær, var dregin til baka af meiri hluta nefndarinnar í dag að okkur hafi verið ranglega hafnað um þessa vinnu án nokkurs rökstuðnings. Sú beiðni til virðulegs forseta, að taka afstöðu til málsins, stendur.