beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegur forseti. Út af þessari yfirlýsingu forseta vil ég lesa hér, með leyfi forseta, 62. gr. í starfsreglum fastanefnda um það þegar beiðni er hafnað:
„Telji nefndarmaður að tillögu sinni um sérfræðiaðstoð hafi verið ranglega hafnað eða hann getur ekki fellt sig við þann sem meiri hluti nefndar hyggst fela verkefnið er honum heimilt að skjóta málinu til forseta.“
Ég held að þetta sé alveg skýrt, virðulegur forseti.
Oft er nú rætt hér út og suður undir þessum lið um störf þingsins en hér erum við með algerlega kristaltært mál sem á erindi við forseta þingsins og snýr að störfum þingsins. Það er vegið að réttindum okkar í minni hluta atvinnuveganefndar og ekki í fyrsta skipti. Forseti hefur reynt að bera klæði á vopnin og vísa máli til nefndar meðan það var hér til umræðu til að reyna að leysa og höggva á hnútinn. Það tókst ekki betur en raun bar vitni. Sá yfirgangur og dónaskapur sem okkur var sýndur í hv. nefnd í morgun er fyrir neðan allar hellur og það dugar okkur ekki, virðulegur forseti, (Forseti hringir.)að það hafi verið fundað með þingflokksformönnum áðan án nokkurrar niðurstöðu. Við óskum eftir því að fá niðurstöðu í þetta mál. Það er brýnt vegna þess að hér er vegið að stjórnarskrárvörðum rétti manna sem kemur að atvinnufrelsi þeirra. Þetta er stórmál (Forseti hringir.)þó að mönnum finnist það mörgum lítilsvirt.