157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[15:53]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er rétt að þingflokksformenn funduðu með forseta í þinghléi. Án þess að fara nákvæmlega út í það sem þar var rætt þá liggur það alveg fyrir að a.m.k. sá þingflokksformaður sem hér stendur er engu nær um málsmeðferð þeirrar beiðnar sem afgreidd var athugasemdalaust úr hv. atvinnuveganefnd; beiðni um álit Lagastofnunar á þessu þingmannafrumvarpi sem um ræðir. Það virðist hins vegar liggja fyrir, þótt ég geti ekki fullyrt það hér án frekari lögfræðilegrar greiningar, að þeirri beiðni hafi verið í fyrsta lagi hafnað á fundi atvinnuveganefndar í morgun með því að málið hafi verið sett á dagskrá fundarins. Að því leyti kann að mínu mati, virðulegur forseti, það að koma til úrskurðar forseta í málinu þar sem fyrir liggur, ef ekki er hægt að skilja mál öðruvísi, að þar með hafi þessari beiðni verið hafnað. (Forseti hringir.) Ég tel þetta mál vera þannig, eins og staðan er í dag, að forseti geti ekki skorast undan því að skoða málið með tilliti til hlutverks forseta á þessu stigi málsins.