157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[15:54]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Óháð því hver mun fjalla um málið þá er málið um það að hv. atvinnuveganefnd samþykkti að kalla hér eftir mikilvægum upplýsingum áður en frekari efnisleg umræða um þetta mál gæti farið fram enn þá óleyst. Því hlýtur að vera eðlilegt að það yrði fundið úr því, óháð því hver tekur um það ákvörðun eða í hvaða ferli það er, hvort þessi gögn muni koma hér áður en umræðan heldur áfram um málið. Það er fáheyrt að þingnefnd samþykki að óska eftir sérfræðiáliti frá Lagastofnun Háskóla Íslands en svo sé bara allt í einu sagt allt í plati og það dregið til baka. Hvað er það sem meiri hlutinn óttast við þetta? Ef greinargerðin er svona vel unnin hlýtur Lagastofnun bara að staðfesta það að greinargerðin sé góð og þetta sé ekkert mál. Þá væri nú ekki mikið vandamál að klára málið þegar það kæmi. En þegar meiri hlutanum dettur allt í einu í hug að afturkalla beiðnina þá vakna tvær, ef ekki þrjár eða hundrað spurningar.