157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[15:56]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þann fund sem fór hér fram áðan. Ég er nú kannski ósammála þeim sem talaði á undan, mér finnst alveg skýrt hver staða mála er. Hér er mikilvægt að við virðum þá þinglegu meðferð sem mál fá á Alþingi. Við erum með þetta mál sem afgreitt var úr nefnd og kom til 2. umræðu fyrir tveimur vikum síðan. Það er rétt að það var sátt um það meðal þingflokksformanna að gera hlé á þeirri umræðu til að fá inn einn gest. Um það var samkomulag. Sá gestur kom fyrir nefndina. Hann er búinn að koma fyrir nefndina. Málið er því hér í 2. umræðu. Nefndin ætlaði að skoða það að óska eftir ákveðnu áliti. Það hefur verið afturkallað. Það er staða málsins og því er það komið í 2. umræðu. Sú umræða á að fara fram síðar í dag og svo er hægt að vísa málinu aftur til nefndar milli umræðna. Þetta er hin þinglega meðferð sem ég veit að við þekkjum öll hér og er mikilvægt að við virðum.