beiðni um sérfræðiaðstoð.
Frú forseti. Ef ég vissi ekki betur myndi ég telja að við værum komin aftur í júlí 2025.
Frú forseti. Afstaða forseta til þeirrar beiðni sem ég setti fram fyrir hönd minni hluta atvinnuveganefndar virðist vera á einhverjum misskilningi byggð. Hér lýsti forseti því áðan að þetta færi til greiningar á nefndasviði. Það stendur í 62. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, með leyfi forseta:
„Telji nefndarmaður að tillögu sinni um sérfræðiaðstoð hafi verið ranglega hafnað eða hann getur ekki fellt sig við þann sem meiri hluti nefndar hyggst fela verkefnið er honum heimilt að skjóta málinu til forseta.“ — Ekki nefndasviðs, til forseta.
Þetta stendur í starfsreglum fastanefnda Alþingis. Því ítreka ég beiðni mína fyrir hönd minnihlutafulltrúa í atvinnuveganefnd um að virðulegur forseti taki þetta mál til skoðunar og komi með rökstudda niðurstöðu til baka. Það hefur greinilega ekki verið gert í kjölfar beiðnar minnar fyrr í dag í ljósi þess misskilnings sem kom í ljós þegar virðulegur forseti ávarpaði þingsal rétt áðan.