157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[15:58]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Í ljósi orða frú forseta áðan og svo erindis þeirra hv. þm. Bergþórs Ólasonar og Jóns Gunnarssonar, þar sem 62. gr. var bara lesin upp, þá þykir mér greinin nú vera þannig skrifuð að það þurfi ekki beinlínis að vera lögfræðimenntaður til að skilja þessa grein. Það er klárlega heimild til að skjóta málinu til forseta. Það hefur verið gert. Sú beiðni hefur nú verið ítrekuð. Ég veit ekki hvort það breytir nokkru hvort ég ítreka þá beiðni hér einu sinni enn eða ber að skilja þetta svo að ræðustóll Alþingis dugi ekki til að hnykkja á slíkri beiðni? Þarf sú beiðni að vera skrifleg?