beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegur forseti. Þetta mál er orðið hið mesta „skuespil“. Nefndin samþykkir að leita eftir lögfræðiáliti eða þeir sem greiða atkvæði, meiri hlutinn situr hjá. Þannig að það er samþykkt. En síðan er þessari beiðni hent út á hjarnið og frýs þar og svo er kallaður saman nefndarfundur og þetta dregið til baka og því hafnað. Hvers lags vinnubrögð eru þetta, virðulegur forseti? Þetta eru ótrúleg vinnubrögð og framkoma þegar það er búið að samþykkja að senda málið út og fá þetta álit. Svo er ekkert gert með það.
Virðulegur forseti. Þetta er orðið svo mikið „skuespil“ að ég tel að virðulegur forseti verði að kalla saman fund. Virðulegur forseti verður að skoða þetta mál betur. Þessi framkoma meiri hluta nefndarinnar er algerlega óboðleg.