beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegur forseti. Það sem við gagnrýnum hér í þessu máli er málsmeðferðin. Við gagnrýnum hér aðför að lýðræðislegum vinnubrögðum þingsins sem er skýrt kveðið á um í þingskapalögum.Virðulegur forseti. Þegar sú staða kemur upp, sem er í þessu máli, þá er útilokað, finnst mér, að forseti láti það mál koma á dagskrá sem er hér á dagskrá í dag án þess að skera úr um þennan ágreining, án þess að fara yfir málið og kveða upp sína niðurstöðu í því, leita ráðgjafar hjá lögfræðideild þingsins og lögfræðingum þingsins. Svona vinnubrögð getum við ekki látið þróast í þinginu. Það er algerlega útilokað. Hvert erum við komin ef bara með yfirgangi (Forseti hringir.) og geðþótta er hægt að valta hér yfir minni hlutann og taka ekkert tillit til skoðana hans eða beiðna um gestakomur eða slíkt (Forseti hringir.) sem eru bornar fram á grundvelli þingskapalaga sem við höfum öll samþykkt? Þá er málið bara allt í einu komið á dagskrá.
Virðulegur forseti. Ég skora á forseta að bregðast við þessu. Það verður að gera það hér og nú.