157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:02]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Hér höfum við verið að ræða um málsmeðferðina og undirbúning mála. Það var síðast í morgun í hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem Seðlabankinn staðfesti, ekki bara einu sinni heldur tvisvar, óvandaðan undirbúning eða að hv. stjórnarmeirihlutinn hafi ekki hlustað á varnaðarorðin, hafi ekki kannað afleiðingarnar, hafi bara sett hausinn undir sig og klárað málin með tilheyrandi afleiðingum. Þetta er búið að gerast allt of oft. Við erum líka að sjá endalausar fréttir sem staðfesta það sem var varað við hér í sumar þegar offorsið var algjört og sömu vinnubrögðin viðhöfð varðandi veiðigjöldin. Þetta er aftur og aftur sem meiri hlutinn lokar eyrunum og hlustar ekki á afleiðingarnar. (Forseti hringir.) Svo þurfum við því miður að koma hérna og segja: Við sögðum ykkur þetta, við bentum á þetta allt saman. Þetta er allt að rætast, því miður.