beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegur forseti. Manni verður orða vant á þessum tímamótum sem við erum á hér, það virðist ekki vera sami skilningur á upplestri upp úr starfsreglum fastanefnda Alþingis. Hér er talað um 62. gr. starfsreglna hvað þetta varðar og það er alveg skýrt hvað stendur þar. Þetta snýr að því að beina beiðni til forseta Alþingis þegar viðkomandi aðili, hvort sem það er einn nefndarmaður eða minni hluti í nefnd, og ég verð að segja það, forseti, að mér finnst mjög sérstakt í ljósi þess að það séu hér bara — ég ætla ekki einu sinni að segja það en mér finnst mjög merkilegt að ekki sé hægt að fara eftir því sem stendur skýrt hvað varðar starfshætti fastanefnda Alþingis. Það er alveg stórfurðulegt.