157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:05]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Herra forseti. Þetta er allt á sömu bókina lært, ófagleg vinnubrögð, ekki tekið tillit til beiðna, alla vega ekki beiðna minni hlutans. En, herra forseti, mér finnst nauðsynlegt að kalla eftir afstöðu þingmanna Viðreisnar og Samfylkingarinnar sem eru í nefndinni. Hvað hafa þeir að segja? Jú, þetta er allt á ábyrgð Samfylkingar og Viðreisnar, öll þessi mál Flokks fólksins. Það er ítrekað að koma í ljós að þau eru illa unnin. Og hvað þýðir það? Það þýðir óvönduð lagasetning. Er það það sem þið viljið standa fyrir, Viðreisn og Samfylking, aftur og aftur, óvandaðri lagasetningu?