157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:06]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það kemur alltaf betur og betur í ljós hversu gott er að ræða málið hér í þessum þingsal. Málið, þetta furðumál, er að skýrast eftir því sem lengra líður á daginn. Ekki þó þannig að hagur eða málflutningur stjórnarmeirihlutans vænkist við það. Það kemur nefnilega í ljós, sem ég hafði nú ekki vitneskju um hér fyrr í dag, þegar við vorum að ræða þessi mál, að á fundi hv. atvinnuveganefndar í morgun gerðist það að hv. formaður nefndarinnar lagði til að beiðni sú sem hefur verið hér til umræðu, beiðni um umsögn Lagastofnunar, yrði dregin til baka. Það var gert að vel ígrunduðu máli eins og fram kemur í fundargerð af fundinum. Þar með liggur fyrir að 62. gr. reglna um starfshætti fastanefnda hér virkjast (Forseti hringir.) vegna þess að með því að hafa dregið þessa beiðni formlega til baka, eins og gerðist í morgun, þá (Forseti hringir.) situr nefndarmaður uppi með að ósk hans um sérfræðiálit er hafnað. Á því þarf virðulegur forseti að taka. Ég skora á forseta að gera aftur hlé á þingfundi til þess að greiða úr þessari flækju.