beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegi forseti. Það hefur margt verið sagt hérna þar sem ekki er verið að fara með rétt mál og ég ætla ekki að elta ólar við að bregðast við því öllu. En það liggur fyrir að þegar hlé var gert 29. janúar á 2. umræðu um það mál sem hér um ræðir þá var bara samþykkt að verða við beiðni um einn gest frá atvinnuvegaráðuneytinu. Það var ekki samþykkt að verða við áframhaldandi beiðnum um gesti í þessu hléi eða önnur álit. Við sátum vissulega hjá, meiri hlutinn, þegar þessi ósk kom fyrir tveim vikum um þetta lögfræðiálit. Eftir tvær vikur lá fyrir að ekki var enn þá búið að orða þessar spurningar til viðkomandi aðila og við töldum ekki rétt að bíða eftir því þar sem það liggur á að afgreiða málið. Eins og segir í okkar bókun: „... enda telur meiri hlutinn frumvarpið fullunnið og fullbúið.“ Með ítarlegri greinargerð frumvarpsins er vísað til stjórnarskrárvarins réttar þeirra sem stunda veiðarnar. Er þar vísað í minnisblað frá Fiskistofu sem styður að allir sem hafa verið á veiðum (Forseti hringir.) og sem hafa fengið aflaheimildir eigi rétt áfram og aðrir sem hafa dottið út úr kerfinu með þessum nýju lögum.