157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:10]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langaði bara að koma hér aðeins upp og taka undir með kollegum mínum sem hafa verið að gagnrýna þessa málsmeðferð hér. Ég verð að lýsa verulegri undrun minni á því í hvaða farveg þetta mál er raunverulega komið. Það var búið að óska eftir því og nefndin búin að samþykkja að fá Lagastofnun Háskóla Íslands til að fara yfir og koma með álit varðandi þau ágreiningsefni sem í frumvarpinu eru. Mér er það bara algerlega óskiljanlegt af hverju meiri hlutinn vill ekki bíða eftir slíku áliti til þess að lagasetningin verði vandaðri. Sömuleiðis finnst mér mjög sérstakt, virðulegur forseti, að menn telji að 62. gr. eigi ekki við í þessu máli. Það liggur fyrir að það er búið að óska eftir sérfræðiaðstoð. Það liggur fyrir að meiri hluti nefndarinnar hefur dregið þá beiðni til baka. (Forseti hringir.) Mér er spurn: Getur virðulegur forseti komið með dæmi um það hvar 62. gr. ætti við ef hún á ekki við í þessum málum?

(Forseti (IngÞ): Forseti hefur ekki slíkt dæmi á reiðum höndum sem stendur.)