beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegi forseti. Það er mjög sérstakt að verða vitni hér í þessum sal, enn eina ferðina, að vinnubrögðum stjórnarmeirihlutans, meiri hlutans hér á Alþingi Íslendinga. Einhverra hluta vegna þá er maður í einhvers konar — svo ég sletti nú ekki á erlendu tungumáli; maður er að endurupplifa hér augnablik síðasta vors þar sem ég hélt að forseti hefði sagt fögrum orðum við þing í haust að hér yrði annað vinnulag og forseti væri sannarlega forseti allra þingmanna. En ég get ekki betur séð en að þingforseti sé hér að stíga fram með afgerandi hætti, eingöngu að vinna fyrir stjórnarmeirihlutann og virðir ekki og ætlar ekki að virða þá sjálfsögðu kröfu (Forseti hringir.) minni hluta nefndarinnar um að fá álit sem sannanlega var samþykkt í atvinnuveganefnd. Hér er meiri hlutinn að stíga fram með svo forkastanlegum hætti að forseti (Forseti hringir.) getur ekki annað en stigið inn.