beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegi forseti. Ég sat nú í minni hluta á síðasta kjörtímabili og ég man ekki betur en að stundum hafi verið greidd atkvæði gegn því að minni hlutinn fengi einhver sérfræðiálit úr bænum og annað þess háttar án þess að kallað hafi verið eftir úrskurði forseta til að fara í það. Nú skulum við aðeins draga andann þar sem það hefur verið komið til móts við minni hlutann í þessu máli. Það var samþykktur fundur þar sem kallað var á gest sem sérstaklega var óskað eftir. Síðan kemur beiðni um þetta lögfræðiálit og meiri hlutinn var allur af vilja gerður til að koma til móts við það og situr hjá. Þannig að það var kannski ekki beint nefndin sem samþykkti þetta, það var minni hluti nefndarinnar sem samþykkti þetta á meðan meiri hlutinn sat hjá. Síðan hefur í rauninni ekkert gerst og tíminn er að renna út. Það er gríðarlega mikið undir fyrir alla vega svona 200 menn sem gætu verið að fara í dagróðra, sem hafa verið (Forseti hringir.) og voru með réttindi til þess alveg þar til núgildandi lög voru sett. Þess vegna skiptir þetta máli, tíminn rann einfaldlega út og meiri hlutinn (Forseti hringir.) dró þetta til baka þess vegna.