157. löggjafarþing — 71. fundur, 17. feb. 2026.
beiðni um sérfræðiaðstoð.
Herra forseti. Hér erum við í lýðræðinu á Íslandi. Lýðræði krefst stundum tíma. Það er betra að eyða meiri tíma í málin, fá fleiri umsagnir heldur en færri. Það er ljóst að Lagastofnun Háskóla Íslands hefur ekki fengið að koma fyrir atvinnuveganefnd og hér hafa þingmenn verið gengisfelldir sökum þess hversu stutt þeir hafa starfað á þingi. Það er miður. Við verðum að geta starfað sem lýðveldið Ísland og þess vegna eigum við að fá fyrir nefndir þá sem óskað er eftir þó að það kosti tíma.