157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:16]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni þingmannamál. Þetta er ekki mál hæstv. ríkisstjórnar, þetta er þingmannamál frá Flokki fólksins og eina þingmannamálið sem er að fá einhverja alvöruframgöngu í þinginu og virðist vera eitt stærsta baráttumál hæstv. ríkisstjórnar. En samt er þetta þingmannamál en ekki mál ríkisstjórnarinnar. Þetta mál er allt hið furðulegasta, virðulegur forseti. En það sem er í rauninni sorglegast við þetta allt saman er að það liggur ekkert á. Það væri meiri bragur á því, virðulegur forseti, að taka þetta mál til baka, kalla eftir þessu áliti og reyna nú einu sinni að vinna einhverja löggjöfina hér á réttum hraða og með allar upplýsingar fyrir framan sig og reyna að vinna málin vel. Það er það eina sem er verið að biðja hér um, að þetta mál verði tekið út, álitið fengið og málið rætt betur.