157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:17]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Herra forseti. Ég veit ekki hvaðan á mig stendur veðrið þegar ég hlusta á röksemdafærslu hv. þingmanna meiri hlutans. Mig langar að lesa hérna 62. gr. aftur, með leyfi forseta:

„Beiðni hafnað. Telji nefndarmaður að tillögu sinni um sérfræðiaðstoð hafi verið ranglega hafnað eða hann getur ekki fellt sig við þann sem meiri hluti nefndar hyggst fela verkefnið er honum heimilt að skjóta málinu til forseta.“

Virðulegur forseti. Nú reynir á. Er forseti forseti alls þingsins eða er virðulegur forseti forseti meiri hlutans? Nú reynir virkilega á. Ég hvet hæstv. forseta að skerast í leikinn, kalla þingflokksformenn saman aftur hið snarasta og taka málið af dagskrá.

(Forseti (IngÞ): Áskorun hv. þingmanns verður svo sannarlega komið áleiðis til hæstv. forseta Alþingis.)