beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegi forseti. Já, lýðræði tekur tíma. Það getur jafnvel tekið yfir 100 tíma eins og kom fram síðasta vor. En mig langar aðeins að meta stöðuna hér. Það sem gerðist í dag var að það var sett þingmál á dagskrá sem stór hluti þingmanna vill ekki að verði að lögum. Það hefur nú gerst áður og mun líklegast einhvern tímann gerast aftur. Ég ætla að taka það fram að mér finnst forseti ekki hafa komið sérstaklega illa fram í þessu máli. Forseti hefur þann rétt að raða upp dagskrá þingsins. Svo var óskað eftir fundarhléi og það var orðið við því. Þá var fundið að tímasetningu fundarhlésins og orðið var við því að breyta því. Mér sýnist að þessi viðleitni forseta hafi ekki leitt til þess að það hafi komist einhver lausn á málið. Og í umræðum um fundarstjórn forseta hefur í rauninni ekkert nýtt útspil komið fram sem hefur búið til svigrúm fyrir forseta til að leysa málið á nokkurn hátt, fólk hefur bara orðið harðorðara í þeim yfirlýsingum sem það hefur komið með. Þannig að í því ljósi hvet ég forseta til að halda áfram með dagskrá þingsins og verða ekki við beiðnum um frekari fundarhlé í dag.