beiðni um sérfræðiaðstoð.
Herra forseti. Ég vil nú byrja á því að taka undir með hv. þm. Pawel Bartoszek, mér finnst þingmenn hafa gengið svolítið harkalega fram gagnvart okkar virðulega þingforseta sem hefur svo sannarlega komið til móts við sjónarmið minni hlutans hér. Það hefur verið gert hlé á umræðunni, 2. umræðu. Umbeðinn gestur var fenginn á fund nefndarinnar en þá komu fram nýjar kröfur. Þegar forseti féllst á fund þá var ekki fallist á tímasetninguna. Þannig að ég tel að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar verði svolítið að líta í eigin barm þegar þeir tala um óvönduð vinnubrögð og, ég vil segja, ganga harkalega fram og koma á ósanngjarnan hátt fram gagnvart okkar virðulega forseta í þinginu. Þetta mál er búið að vera til umfjöllunar í á annað ár. Það er búið að vera til umfjöllunar í nefndinni frá því strax í haust þannig að það er búið að fjalla vel um það. Það liggur fyrir góð greinargerð þar sem (Forseti hringir.) fjallað er um þau atriði sem gerður er ágreiningur um og kallað eftir einhverri greinargerð um utan úr bæ.