beiðni um sérfræðiaðstoð.
Herra forseti. Ég vil taka undir með þeim sem hafa verið að hvetja forseta til að skera á þennan hnút. Auðvitað er það augljóst að forseti á að gera það, hann á ekkert að hika hér og draga þetta eitthvað á langinn. Auðvitað er það augljóst miðað við þessa lagagrein, sem er margbúið að lesa upp, að forseti á að skera úr um þetta. Það er sannarlega komin fram beiðni. Ég veit ekki hvort beiðnin er skrifleg, það er nú margbúið að ítreka hana hér í ræðustóli, um að skera á þennan hnút þegar nefndarmaður óskar eftir faglegu áliti. Þetta er nú ekkert smá álit, þetta er álit Lagastofnunar Háskóla Íslands vegna frumvarps sem gæti hugsanlega skert atvinnuréttindi, alvarleg réttindi manna, og það þarf auðvitað að fá lagalegt álit lögspekinga á því hvort þetta gæti hugsanlega valdið bótaskyldu fyrir ríkissjóð. Ætla menn að loka augunum fyrir því? (Forseti hringir.) Ætla menn bara að yppta öxlum og halda áfram? Flokkur fólksins er hér í fararbroddi og það heyrist lítið frá þingmönnum annarra flokka, sem er líka einkennilegt.