157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:24]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég má til með að leggja nokkur orð í belg enda steinhissa á umræðum hér í þingsal. Ég fæ ekki skilið þá tregðu sem virðist vera hjá meiri hlutanum til að vanda til vinnubragða. Sætir það mikilli furðu minni að vera í púlti Alþingis og þurfa að brýna þingmenn hvað þetta varðar, hafandi flutt mál fyrir Hæstarétti Íslands þar sem fundið var að löggjöf og lagasetningu hér, þar sem fundið var að því að Alþingi Íslendinga gætti ekki að lágmarksinntaki þess sem þarf að gæta að þegar verið er að skerða atvinnuréttindi fólks. Að löggjafinn meti ekki hvort lagasetningin rúmist stjórnskipulega innan þess ramma sem stjórnarskráin setur. Þannig að ég tek undir með hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar sem hafa farið fram á það að forseti úrskurði um þessa eðlilegu beiðni þeirra um að fá álit sérfræðinga Lagastofnunar til að meta stjórnskipulegt gildi þess frumvarps sem hér er til umfjöllunar.